Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Garðyrkjufræðingur

Sveitarfélagið Árborg leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf garðyrkjufræðings. Starfið tilheyrir þjónustumiðstöð sveitarfélagsins á mannvirkja- og umhverfissviði. Þjónustumiðstöð gegnir lykilhlutverki í þjónustu sveitarfélagsins til íbúa og viðskiptavina. Starfsemi hennar er afar fjölbreytt og snýr m.a. að verklegum framkvæmdum, umhirðu og ásynd bæjarkjarnanna. Staða garðyrkjufræðings heyrir undir garðyrkjustjóra Árborgar.

Hér er um að ræða spennandi starf á góðum vinnustaðþar sem viðkomandi fær tækifæri til að móta stefnur og áherslur sveitarfélagsins í uppbyggingu grænna svæða og gróðurs.

Menntunar- og hæfniskröfur
Skrúðgarðyrkjufræðingur frá LBHÍ eða sambærileg menntun
Reynsla af garðyrkjustörfum og stjórnunarreynsla
Ökuréttindi
Skipulögð og fagleg vinnubrögð, framtakssemi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Hæfni í mannlegum samskiptum og færni til þess að leiða vinnuhóp
Stundvísi, frumkvæði og útsjónarsemi til að klára verkefni
Viðeigandi starfstengd réttindi. Í starfi þarf að nota ýmsar vélar og tæki svo sem bíl, keðjusög, limgerðisklippur (vél), eiturdælu, sláttuvélar, jarðvegsþjöppu, kurlara, ýmis raftæki og garðyrkjuáhöld
Góð almenn tölvukunnátta
Góð og yfirgripsmikil fagkunnátta
Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
Helstu verkefni og ábyrgð
Garðyrkjufræðingur II starfar í umboði garðyrkjustjóra að daglegri stjórnun þeirra verkefni sem tilheyra starfssviði þjónustumiðstöðvar/umhverfisdeildar
Öll almenn garðyrkjustörf innan sveitarfélagsins s.s trjá- og runnaklippingar, illgresiseyðingu, slátt, mosatætingu, úðun, áburðargjöf og fleira
Eftirfylgni umhirðuáætlana og þeirra verkefna sem heyra undir deildina
Kortlagning verkefna í samráði við garðyrkjustjóra
Ráðgjöf til forstöðumanna stofnana bæjarins varðandi almenna umhirðu lóða, skipulag, gróður og annað sem að hans sérþekkingu lýtur í samráði við garðyrkjustjóra
Garðyrkjustjóri annast daglegan rekstur umhverfisdeildar og þeirra verkefna sem henni tilheyra
Umsjón með uppbyggingu og viðhaldi opinna svæða sem og lóðum grunn- og leikskóla innan bæjarlandsins s.s nýframkvæmdir við gerð garða og útisvæða, hellulagnir og hleðslur
Gerð og uppfærsla umhirðuáætlana og eftirlit með umhirðuverkefnum
Umsjón með hönnun og aðkeyptri ráðgjöf vegna stærri verkefna
Auglýsing birt13. janúar 2022
Umsóknarfrestur27. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 67, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar