Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands

Gagnasöfnun - spyrlar - helgar- og kvöldvaktir

Hagstofa Íslands óskar eftir að ráða spyrla til tímabundinna starfa í símaveri Hagstofunnar í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hafa samband símleiðis við þátttakendur í rannsóknum og safna gögnum með viðtölum.

Hæfniskröfur

  • Hafa ánægju af samskiptum

  • Eiga auðvelt með samskipti við fólk í gegnum síma

  • Kurteisi, þolinmæði, nákvæmni og ábyrg vinnubrögð

  • Gott vald á íslensku og ensku, fleiri tungumál kostur - þá sérstaklega pólska

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur

  • Hafa náð 18 ára aldri

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Spyrlar vinna tvær til fjórar vaktir í viku eftir föstu vaktaskipulagi. Hver vakt er 4 tímar, en mismunandi vinnutími er í boði eftir samkomulagi.

Um er að ræða helgar-, kvöld- og dagvaktir.

Mikilvægt er að umsækjendur hafi möguleika á að taka þátt í þjálfun sem fer fram í upphafi ráðningar.

Námskeið áætlað á tímabilinu 12. -17. janúar. 2027.

Við hvetjum alla áhugasama um að sækja um.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfshlutfall er 30%

Umsóknarfrestur er til og með 16.12.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Rós Reynisdóttir

Teymisstjóri gagnaþjónustu

Tölvupóstur: [email protected]

Sími: 528-1231

Auglýsing birt25. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
PólskaPólska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti í síma
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar