Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir

Gæðastjóri

FSRE óskar eftir að ráða öflugan einstakling til að leiða ferlaumbætur og þróun nýs gæðakerfis í nýrri stofnun. Verkefnin eru áhugaverð, krefjandi og haldast m.a. í hendur við sameiningu Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) og Ríkiseigna (RE). Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð og umsjón með þróun og uppbyggingu gæðakerfis stofnunarinnar.
  • Uppsetning rafrænna gæðaskjala og ferla í samstarfi við önnur svið.​
  • Viðhald á gæðaskjölum, gæðaáætlun auk innri úttekta.
  • Regluleg rýni ferla og verklagsreglna ásamt umbótastarfi á sviði gæðamála.
  • Skipulagning og framkvæmd fræðslu um gæðamál.
  • Ráðgjöf og stuðningur til stjórnenda og starfsfólks varðandi gæðamál.
  • Þátttaka í verkefna- og umbótahópum eftir því sem við á.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. af verk-, raunvísinda eða tæknisviði.
  • Viðbótarmenntun á sviði verkefnastjórnunar er kostur.
  • Þekking á rekstri gæðastjórnunarkerfa, mótun verkferla og innleiðingu er skilyrði.
  • Reynsla og þekking af verkefnastjórnun og skipulagningu umbótaverkefna er kostur.
  • Starfsreynsla eða þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á stafrænni þróun tengd ferlamálum er kostur.
  • Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
  • Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.

Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Upplýsingar veita: Thelma Kristin Kvaran ([email protected]) og Hafdís Ósk Pétursdóttir ([email protected]).

Auglýsing birt10. júní 2022
Umsóknarfrestur27. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 7A, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar