Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag
Efling stéttarfélag

Fulltrúi á Vinnuréttindasviði

Efling stéttarfélag leitar að fulltrúa á Vinnuréttarsvið, til að veita félagsmönnum þjónustu og ráðgjöf á grundvelli kjarasamningsbundinna réttinda.

Leitað er að aðila sem hefur gott vald á íslensku og ensku. Kunnátta á pólsku er mikill kostur.

Viðkomandi þarf að vera skipulagður í vinnubrögðum, lausnamiðaður, jákvæður og reiðubúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni á skrifstofu Eflingar.

Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Háskólapróf er kostur
- Reynsla og þekking á vinnumarkaðsmálum og starfsemi stéttarfélaga
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi
- Rík þjónustulund og umburðarlyndi
- Skipulags- og greiningarhæfni og geta til að vinna undir álagi
- Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta mikill kostur
- Góð tölvukunnátta og reynsla í office 365
- Nákvæmni og vönduð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti og þjónusta við félagsfólk og atvinnurekendur
- Móttaka, svörun og eftirfylgni erinda félagsfólks
- Bréfaskriftir og kröfugerðir fyrir hönd félagsfólks
- Útreikningar á launakröfum félagsfólks
- Þátttaka í verkefnum þvert á deildir skrifstofu Eflingar
Auglýsing birt12. júní 2023
Umsóknarfrestur29. júní 2023
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar