
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Frístundaleiðbeinendur og stuðningsstarfsmenn
Ert þú barngóður, jákvæður og ábyrgur einstaklingur?
Á frístundaheimilum Árborgar eru starfrækt fimm frístundaheimili fyrir börn í 1. - 4. bekk. Leitað er eftir starfsfólki til að bætast í hópinn með okkur í vetur.
Frístundaheimilin eru hluti af frístundamiðstöð Árborgar og starfa eftir einkunarorðum hennar sem eru Fjölbreytileiki - Traust - Samvinna – Gleði.
Vinnutími í frístund er eftir hádegi og í boði eru 35-50% starfshlutfall. Vinna sem hentar einnig vel fyrir skólafólk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi fyrir 6-10 ára börn
- Leiðbeina börnum í leik og starfi
- Að styðja við börn með sérþarfir
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
- Samskipti og samstarf við foreldra og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og ánægja af starfi með börnum
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Færni í mannlegum samskiptum og samstarfi
- Frumkvæði og sköpunargleði
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Menntun sem nýtist í starfi æskileg en ekki nauðsynleg
Auglýsing birt7. júní 2024
Umsóknarfrestur24. júní 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSamviskusemi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Hlutastarf
Pegasus félagsmiðstöð

Skóla- og frístundaliði, Bjarg - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Frístundaráðgjafi óskast í Molann - miðstöð unga fólksins
Molinn - miðstöð unga fólksins

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Höfuð-borgin sértæk félagsmiðstöð

Frístundaleiðbeinandi
Frístundamiðstöðin Þorpið