

Frístundaleiðbeinendur
Frístundamiðstöð Árborgar óskar eftir starfsfólki á frístundaheimilin fyrir veturinn 2022-2023.
Starfsrækt eru frístundaheimili við alla grunnskóla sveitarfélagsins þar sem boðið er upp á fjölbreytt frístunda- og tómstundastarf fyrir 6-9 ára börn að loknum hefðbundnum skóladegi.
Á frístundaheimilum starfa frístundaleiðbeinendur sem bjóða börnum innihaldsríkt frístunda - og tómstundastarf í barnvænu og skapandi umhverfi þar sem starfshættir einkennast af frjálsum leik og vali. Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf.
Frístundamiðstöð Árborgar starfrækir frístundaheimilin Bifröst við Vallaskóla, Hóla við Sunnulækjarskóla, Bjarkarból við Stekkjaskóla og Stjörnusteina við Barnaskóla Eyrabakka- og Stokkseyri.







