Kúlan félagsmiðstöð
Kúlan félagsmiðstöð
Kúlan félagsmiðstöð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð

Félagsmiðstöðin Kúlan óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda frá og með 21. ágúst næstkomandi.

Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í 5.-10.bekk í frístundastarfi. Hann hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvanna. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.

Um er að ræða hlutastarf og er vinnutími á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 17:00-22:30 og annan hvern föstudag klukkan 19:00-23:30.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum hópum, verkefnum og viðburðum tengdum menningar-, félags- og frístundastarfi í félagsmiðstöðvum í samstarfi við forstöðumann og aðra starfsmenn.
  • Vinnur faglegt starf með börnum og unglingum í frístundastarfi.
  • Vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfseminni.
  • Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
  • Vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og stuðlar að því að börn og unglingar eigi greiðan aðgang að lýðræðislegum ákvörðunum um starfsemi félagsmiðstöðvar.
  • Hefur umsjón með skipulögðu frístundastarfi ólíkra hópa barna og unglinga í samræmi við þeirra þarfir.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum kunna að vera falin af yfirmanni og fellur undir hans starfssvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Diplómanám í uppeldis- eða tómstundafræðum eða sambærilegu námi æskilegt.
  • Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Auglýsing birt9. júlí 2024
Umsóknarfrestur4. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Vallakór 12, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar