

Fréttamenn
Fréttastofa RÚV auglýsir eftir öflugum fréttamönnum til starfa. Við leitum að metnaðarfullu og traustu fólki með gott fréttanef og reynslu sem nýtist í lifandi og krefjandi fréttaumhverfi.
Fréttastofan flytur fréttir í útvarpi, sjónvarpi og á vef allan sólarhringinn alla daga ársins og færir landsmönnum nýjustu tíðindi og fréttaskýringar af innlendum og erlendum vettvangi. Undir hatti fréttastofu eru auk þess fréttatengdir þættir um það sem er efst á baugi innanlands og utan. Á fréttastofunni starfar fjölbreyttur hópur með mikla þekkingu og reynslu í kraftmiklu, skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Við sækjumst sérstaklega eftir fólki með reynslu af fréttamennsku, ritstjórn, dagskrárgerð eða annarri miðlun sem getur unnið sjálfstætt að fjölbreyttum verkefnum. Starfið felur meðal annars í sér að afla frétta, vinna fréttaskýringar, taka viðtöl, þróa hugmyndir að fréttainnslögum og miðla efni í sjónvarpi, útvarpi, á vef og samfélagsmiðlum.
- Öflun og vinnsla frétta.
- Miðlun frétta í sjónvarpi, útvarpi, á vef og á samfélagsmiðlum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Þekking á atvinnulífi, viðskiptum og efnahagsmálum er mikill kostur.
- Haldbær reynsla af blaða- , fréttamennsku eða dagskrárgerð.
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
- Góð almenn tungumálaþekking.
- Góð almenn tölvuþekking og vilji til að tileinka sér nýja tækni.
- Góð framsögn.
- Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna hratt og vel.
Íslenska
Enska