
RÚV
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.

Fréttamaður á næturvaktir
Fréttastofa RÚV leitar að öflugum fréttamanni til að sinna miðlun frétta í útvarpi og á vef á næturvöktum.
Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingi sem hefur góða framsögn og er vel ritfær. Hér starfar fjölbreyttur og metnaðarfullur hópur fréttafólks með mikla reynslu og þekkingu, í kraftmiklu og skapandi umhverfi.
Um 100% starf er að ræða sem er unnið á næturvöktum, að jafnaði aðra hverja viku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnsla frétta.
- Miðlun frétta á vef og í útvarpi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af blaða- og fréttamennsku er kostur.
- Gott vald á íslenskri tungu og góð almenn tungumálaþekking.
- Góð framsögn.
- Góð almenn tölvufærni og áhugi á að tileinka sér nýja tækni.
- Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna hratt og vel.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
Auglýsing birt7. nóvember 2025
Umsóknarfrestur23. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar