Héðinn Kitchen & Bar
Héðinn Kitchen & Bar

Framreiðslunemi

Héðinn Kitchen & Bar leitar að metnaðarfullum framreiðslunemum til að starfa hjá sér í góðu teymi fagfólks. Veitingastaðurinn sem opnar í júní, er í glæsilegu og björtu nýuppgerðu rými við Seljaveg (Héðinshúsið)

Æskilegt er að viðkomandi sé að læra að verða þjónn og leitum við að ábyrgum og kraftmiklum einstaklingum sem hafa gaman af því að veita persónulega og vandaða þjónustu.

Umsækjandi þarf vera minnst tvítugur að aldri

Héðinn Kitchen & Bar is looking for waiter student to join their team. We're looking to hire people for full time positions for our new restaurant opening in June We're looking for people that are educating themselves in the field.

All applicants must be at least 20 years old

HÉÐINN Kitchen & Bar er nýr veitingastaður í 101 Reykjavík, sem opnar í júní, í endurhönnuðu húsnæði sem áður var stálsmiðjan Héðinn.

Í framlínu staðarins eru stofnendurnir Karl Viggó Vigfússon og Elías Guðmudsson sem eru báðir vanir veitingamenn. Þeir fengu til liðs við sig landsliðskokkinn Sigurjón Braga Geirsson og fyrrum landsliðsþjálfara kokkalandsliðsins til að skapa spennandi en samt sem áður afslappaðan less is more matseðil, sem mun vera árstíðarbundinn og áhugaverður. Sindri Guðbrandur Sigurðsson landsliðkokkur mun svo standa þétt við bakið á Sigurjóni og með þeim hópur af færu fagfólki.

Auglýsing birt4. maí 2021
Umsóknarfrestur10. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Seljavegur 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar