Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið

Framleiðslu- og verkefnastjóri Óperunnar

Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu framleiðslu- og verkefnastjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Framleiðslu- og verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og framkvæmd verkefna frá undirbúningi til verkloka í nánu samstarfi við óperustjóra, tónlistarstjóra og aðra lykilstarfsmenn. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á sterka skipulags- og samskiptahæfni. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða skipulag og framkvæmd verkefna frá undirbúningi til verkloka
  • Móta og innleiða verkferla í verkefnastjórnun og framleiðslu
  • Samhæfa vinnu framleiðsludeilda og tækniteyma
  • Gera tíma-, mannafla-, og fjárhagsáætlanir og fylgja þeim eftir
  • Skipuleggja vikulega æfingadagskrá í samstarfi við tónlistarstjóra og leikstjóra og vera daglegur tengiliður við söngvara og annað listafólk  

  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af framleiðsluferli sviðslista (ópera, leikhús, tónleikar eða sambærilegt)
  • Reynsla af stjórnun flókinna verkefna
  • Geta til að vinna sjálfstætt og taka frumkvæði 
  • Góð hæfni í skipulags- og áætlanagerð
  • Reynsla af gerð fjárhagsáætlana
  • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi og vinnuferlum listafólks mikill kostur
  • Góð enskukunnátta skilyrði
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni nauðsynleg 

  

Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar