Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Framkvæmdastjóri siglingasviðs Samgöngustofu

Samgöngustofa leitar að öflugum stjórnanda í starf framkvæmdastjóra siglingasviðs. Siglingasvið samanstendur af tveimur deildum, skipadeild og deild áhafna, skráninga og leyfa, auk tveggja teyma sem sinna siglinga- og hafnartengdum verkefnum. Sviðið fer með stjórnsýslu siglingamála hjá Samgöngustofu, þar á meðal leyfisveitingar og eftirlit. Það ber einnig ábyrgð á framfylgd innlendra og alþjóðlegra skuldbindinga og tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði siglingamála.

Helstu verkefni og ábyrgð

Framkvæmdastjóri siglingasviðs ber ábyrgð á starfsemi, stefnumótun og þróun sviðsins og tryggir að hún sé í samræmi við gildandi lög, reglur og opinber viðmið um rekstur. Viðkomandi er í samskiptum við innlenda hagaðila og tekur þátt í alþjóðlegu starfi. Starfið felur m.a. í sér að leiða starfsemi sviðsins á árangursríkan hátt og með hag samfélagsins að leiðarljósi.

Við leitum að áhugasömum einstaklingi um málefni sviðsins, sem hefur brennandi áhuga á stjórnun og forystu, leggur áherslu á samvinnu og vill byggja upp öfluga liðsheild og eftirsóttan vinnustað.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur, sem og farsæl reynsla af árangursríkri stjórnun og skilvirkri framkvæmd verkefna.
  • Farsæl reynsla af því að leiða og þróa starfsemi, þar á meðal uppbyggingu liðsheildar og markvisst umbótastarf.
  • Hæfni til að vinna að stefnumótun og hafa áhrif á þróun regluverks og opinberrar stefnu.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði verkfræði, stjórnsýslu, lögfræði eða viðskiptafræði. Gerð er krafa um BS- eða BA-gráðu.
  • Þekking á innlendu og evrópsku regluverki tengdu málaflokkum sviðsins er kostur.
  • Þekking á gæðastjórnunarkerfum er kostur.
  • Góðir samskiptahæfileikar ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu viðhorfi.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
  • Góð tölvukunnátta; þekking á stafrænum lausnum og starfrænni þróun er kostur.

Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.

Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur26. janúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar