

Framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs RB
Vilt þú leiða teymi sem mótar og þróar fjármálakerfi framtíðarinnar?
Við leitum að öflugum og reynslumiklum leiðtoga til að taka við hlutverki framkvæmdastjóra hugbúnaðarsviðs hjá RB.
Hugbúnaðarsvið RB sinnir rekstri og framþróun hugbúnaðarlausna RB og innleiðingu þeirra hjá viðskiptavinum. Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni þar sem tækifæri gefst til að setja mark sitt á þróun fjármálainnviða landsins.
Við þróum og rekum mikilvægar innviðalausnir fyrir íslenska fjármálakerfið í nútímalegu tækniumhverfi.
Helstu verkefni:
- Taka þátt í stefnumótun RB og þróa félagið áfram sem öflugan samstarfsaðila bankanna
- Ábyrgð á rekstri og þróun hugbúnaðar hjá RB þar sem áhersla er á öryggi, áreiðanleika og skilvirkni
- Samstarf við viðskiptavini við uppbyggingu og framþróun hugbúnaðarlausna RB
- Leiða og taka þátt í stórum og flóknum innleiðingar- og þróunarverkefnum
- Byggja upp og þróa hugbúnaðarsviðið
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla
- Leiðtogahæfileiki
- Mikil reynsla og þekking á upplýsingatækni og þróun upplýsingatæknikerfa
- Hæfni til að vinna náið með öðrum, byggja upp teymi og skapa skýra stefnu og fókus
- Þekking og notkun á gervigreind í hugbúnaðarþróun
- Þekking á greiðslumiðlun og á íslenskum fjármálamarkaði er mikill kostur
RB er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður með sterka vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á að starfsfólk fái að læra og þróast í starfi.
Höfuðstöðvar RB eru á Dalvegi 30 í björtu og hlýlegu húsnæði þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar.
Starfsánægja í RB hefur verið há um árabil og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að hlúa vel að starfsfólki.
RB hefur hlotið jafnlaunavottun og leggur áherslu á launajafnrétti sem og jafnrétti kynjanna í einu og öllu. RB er fjölskylduvænn vinnustaður með sveigjanlega fjarvinnustefnu.
Öll kyn eru hvött til þess að sækja um.
Umsóknum þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvers vegna þú ættir að verða fyrir valinu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2026.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri, [email protected] og Stefán Ari Stefánsson, mannauðsstjóri, [email protected]
Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Íslenska

