
Frágangur skjalasafna og stafræn endurgerð skjalasafna
Vegna aukinna sérverkefna óskar Þjóðskjalasafn Íslands eftir að ráða starfsfólk á skjalastjórnar- og skjalavörslusvið safnsins. Helstu verkefni eru við frágang og skráningu pappírsskjalasafna og við stafræna endurgerð. Um er að ræða tímabundin störf út árið 2027 með möguleika á framlengingu. Um 100% stöður er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni eru:
- Flokkun, frágangur og skráning pappírsskjalasafna í Þjóðskjalasafni Íslands
- Flutningur á skjalaöskjum og röðun í hillur
- Skönnun og ljósmyndun á skjölum úr safnkosti
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Menntun í skjalfræði er kostur
- Þekking og reynsla af skjalasöfnum er æskileg
- Góð kunnátta í algegnum notendaforritum nauðsynleg
- Góð íslenskukunnátta
- Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er kostur
- Mjög góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund
- Gott líkamlegt atgervi er mikilvægt þar sem burður á skjalaöskjum er hluti af starfinu
Um Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands er menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. nóvember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns Íslands við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Sigríður Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.
Íslenska
Enska