NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Leita að aðstoðarkonu í fullt starf

Proficiency in Icelandic is a necessary requirement/Íslenskukunnátta er skilyrði

Ég er 61 árs kona og bý í Kópavogi og óska eftir aðstoðarkonum á aldrinum 25 - 50 ára í NPA hópinn minn.

Starfið felur í sér að aðstoða mig í hverju sem ég tek mér fyrir hendur frá degi til dags, en ég þarf aðstoð við athafnir daglegs lífs og nota rafmagnshjólastól.

Aðstoðarkonurnar mínar þurfa að:

• Vera líkamlega hraustar, áreiðanlegar, jákvæðar og sveigjanlegar.

• Hafið störf fljótlega.

• Sinnt helstu heimilisstörfum.

• Aðstoðað mig við innkaup.

• Geta aðstoða mig við persónulegar þarfir/athafnir daglegs lífs.

• Hafa tök á að fylgja mér á fundi, til læknis, á tónleika (eða hvað annað sem ég tek mér fyrir hendur frá degi til dags).

• Hafa góða íslenskukunnáttu (ég tala mjög takmarkaða ensku).

• Hafa ökuréttindi (ég á bíl sem ég nota til persónulegra þarfa, en keyri hann ekki sjálf).

• Nauðsynlegt er að hafa hreint sakavottorð

• Vaktir eru eftir vaktarúllu og eru á öllum tímum sólarhringsins.

Mig vantar frábæra manneskju í fullt starf og er starfið laust nú þegar :)

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á npa.is

Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur31. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar