

Forstöðumaður sölu rekstrarlausna
Þekking og Wise leita að metnaðarfullum einstaklingi með haldbæra reynslu í sölu og viðskiptastjórnun rekstrarlausna (MSP) á fyrirtækjamarkaði. Forstöðumaður ber ábyrgð á að móta stefnu fyrir MSP sölu, vinna eftir lykilmælikvörðum og taka þátt í sölu með söluteyminu. Viðkomandi þarf að hafa góða yfirsýn, vera drífandi, eiga auðvelt með að miðla upplýsingum og stuðla þannig að góðu samstarfi innan heildarinnar.
Um er að ræða frábært tækifæri fyrir reyndan og metnaðarfullan einstakling.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun stefnu, markmiða og aðgerða þegar kemur að sölu og viðskiptastýringu
- Greining sölutækifæra
- Gerð söluáætlana og utanumhald árangursmælinga
- Skipulag og eftirfylgni söluherferða
- Sala, öflun nýrra viðskiptasambanda og viðhalda núverandi viðskiptasamböndum
- Viðskiptastýring lykilviðskiptavina
- Dagleg stjórnun og rekstur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Viðamikil reynsla af sölu og/eða viðskiptastýringu
- Reynsla innan upplýsingatæknigeirans er kostur
- Greiningarhæfni sem nýtist sérstaklega við hönnun, keyrslu og úrvinnslu lausna
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Geta og þrautseigja til að ná settum markmiðum
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Um Þekkingu
Haustið 2023 keypti Wise allt hlutafé Þekkingar og vinna fyrirtækin að sameiningu auk þess að geta boðið viðskiptavinum mun sterkara og breiðara lausna- og þjónustuframboð. Þekking og Wise eru því ört stækkandi þekkingarfyrirtæki, sérhæfð í stafrænum lausnum sem veita viðskiptavinum forskot í þeirra rekstri. Hjá Þekkingu og Wise starfa um 160 sérfræðingar í Reykjavík og á Akureyri með áratuga reynslu og þekkingu á sviði alhliða viðskiptalausna. Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur þar sem leitast er við að auka fjölbreytileika í ráðningum. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og íþróttastyrk til starfsfólks.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um starfið veita Stefán Þór Stefánsson ([email protected]) og Harpa Hrund Jóhannsdóttir ([email protected]). Tekið er á móti umsóknum til og með 17. apríl 2024.











