Landsnet
Landsnet

Forstöðumaður reksturs tengivirkja

Hjá okkur er framtíðin ljós

Flutningskerfi raforku er ein mikilvægasta grunnstoð samfélagsins. Hjá Landsneti vinnum við að því að byggja upp og reka sterkt og öruggt flutningskerfi sem mætir kröfum samtímans og framtíðarinnar.

Við leitum nú að forstöðumanni reksturs tengivirkja sem vill leiða mikilvægt teymi og taka þátt í áframhaldandi þróun og rekstri tengivirkja Landsnets.

Forstöðumaður ber ábyrgð á teymi sem sinnir rekstri og viðhaldi tengivirkja Landsnets ásamt eignastýringu flutningskerfisins. Hlutverk teymisins er að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur tengivirkja og styðja við áframhaldandi þróun og uppbyggingu flutningskerfisins.

Starfið felur í sér leiðtogahlutverk þar sem áhersla er lögð á öfluga teymisvinnu, faglega þróun og stöðugar umbætur í rekstri.

Næsti yfirmaður forstöðumanns er framkvæmdastjóri Eigna og reksturs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og leiðtogahlutverk fyrir teymi reksturs tengivirkja.
  • Mannauðsmál teymisins, þar á meðal þróun starfsfólks, velferð og uppbygging árangursmiðaðrar menningar.
  • Ástands- og líftímagreiningar.
  • Áætlanagerð, skipulagning og eftirfylgni við viðhalds- og endurnýjunarverkefni.
  • Áhættumat og stýring rekstraráhættu tengdri starfsemi teymisins.
  • Samskipti og samstarf þvert á fyrirtækið og við hagaðila.
  • Ábyrgð á öryggis- og umhverfismálum innan starfssviðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði verkfræði eða sambærilegu.
  • Reynslu af stjórnun og rekstri.
  • Hæfni til að leiða teymi í breytingum og þróun.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og samstarfsvilja.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Áhugi á raforkukerfinu og þróun innviða.
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í samfélagslega mikilvægum verkefnum og móta framtíð raforkuflutnings á Íslandi.
  • Gott vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun.
  • Góð aðstaða á vinnustaðnum, m.a. líkamsrækt og mötuneyti.
  • Samstarf við fjölbreytt, þekkingarmikið og áhugasamt starfsfólk.
Auglýsing birt12. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar