Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Forstöðumaður reikningshalds

Íslandshótel óskar eftir að ráða í stöðu forstöðumanns reikningshalds. Starfið felst í yfirumsjón og ábyrgð á bókhaldi og uppgjörum félagsins. Starfsmaður ber ábyrgð á frágangi á ársreikningum og árshlutauppgjörum samstæðu Íslandshótela. Starfið krefst mikilla samskipta við stjórnendur og starfsfólk. Forstöðumaður reikninghalds tilheyrir stjórnendateymi fjármálasviðs.

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á öllum þáttum bókhalds samstæðunnar auk dótturfélaga
  • Þátttaka við gerð árshluta- og ársreikninga
  • Gerð skattframtala félaga innan samstæðunnar
  • Greinigarvinna og gerð stjórnendaupplýsinga
  • Leiða og styrkja starfsmenn reikningshalds auk þess að miðla upplýsingum til starfsmanna, deilda og starfsstöðva
  • Samantekt sjálfbærniupplýsinga í ársreikningi
Þekking og hæfni:
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
  • Þekking og haldgóð reynsla á Business Central
  • Meistarapróf á sviði endurskoðunar og reikningsskila er kostur
  • Samskiptafærni, jákvætt viðmót og sveigjanleiki
  • Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Gott vald á íslensku og ensku skilyrði
  • Mjög góð tölvukunnátta
Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:
Fagmennska - Samvinna - Hugrekki
Umsóknarfrestur er til og með 02. desember 2024. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og eru umsækjendur því hvattir til að senda inn umsókn sem fyrst. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrund Hauksdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í gegnum hrund.hauksdottir@islandshotel.is eða í síma 5105600.

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað.

Auglýsing birt12. nóvember 2024
Umsóknarfrestur2. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar