Forstöðumaður menningarmála
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Borgarbyggð óskar eftir að ráða öflugan liðsmann til að sinna starfi forstöðumanns menningarmála í sveitarfélaginu.
Forstöðumaður menningarmála ber ábyrgð á menningarmálum sveitarfélagsins, ber þar með ábyrgð á Safnahúsi og menningarmiðstöðinni Hjálmakletti. Næsti yfirmaður hans sveitastjóri en atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd er stjórn Safnahússins. Forstöðumaður stjórnar rekstri Safnahússins og þeirra safna sem það hýsir og er þar með yfirmaður annarra starfsmanna þar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi
Gerð er krafa um farsæla reynslu af rekstri og starfsmannahaldi
Hæfni í mannlegum samskiptum og framúrskarandi samstarfshæfni
Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Þekking og reynsla af safna- og menningarstarfi
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á rekstri Safnahúss og er yfirmaður starfsmanna Safnahúss.
Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á rekstrarlegum þáttum Safnhúss.
Ber ábyrgð á menningarmálum sveitarfélagsins, útfærir og þróar menningarmál í heild hjá sveitarfélaginu, í samstarfi við stofnanir Borgarbyggðar, félagsheimili, menningarstofnanir í sveitarfélaginu og aðra aðila innan sem utan sveitarfélagsins.
Ábyrgð á að framkvæmd safna- og menningarmála sé í samræmi við skýrslu um framtíðarfyrirkomulag Safnahúss, stefnu sveitarfélagsins, lög og reglugerðir um söfn og menningarmál.
Ábyrgð og umsjón með öflun styrkja og styrktaraðila fyrir Safnahúsið.
Undir sviðið heyrir einnig menningarmiðstöðin Hjálmaklettur.