

Forstöðumaður frístundar í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli leitar að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í starf forstöðumanns frístundar.
Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfána- og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
• Umsjón með skipulagi og rekstri frístundar.
• Vinna að starfsáætlun og mótun félagslegs starfs og í samráði við skólastjórnendur.
• Samvinna og samstarf við kennara, foreldra og stjórnendur.
• Háskólanám (B.Ed, BA) á sviði tómstunda-, uppeldis- og/eða félagsfræða
• Reynsla skipulögðu starfi með börnum
• Reynsla af stjórnun er æskileg
• Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
• Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
• Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
• Viðkomandi þarf að vera lausnarmiðaður í hugsun og geta sýnt sveigjanleika í skipulagi
• Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.
• Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.
Starfsfólk Kópavogs fær frítt í sundlaugar Kópavogs.
Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026 til eins árs vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Íslenska










