
Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara
Suðurnesjabær leitar að öflugum og framsæknum forstöðumanni til að stýra félagsstarfi eldri borgara hjá sveitarfélaginu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Forstöðumaður félagsstarfsins ber ábyrgð á skipulagningu, þróun og framkvæmd fjölbreytts og faglegs félagsstarfs fyrir eldri borgara og öryrkja í Suðurnesjabæ. Forstöðumaður fer einnig með mannaforráð og ber ábyrgð á starfsmannahaldi félagsstarfsins.
Starfið fer fram á tveimur starfsstöðvum og lögð áhersla á að starfsemin sé heilsueflandi og sé bæði aðlaðandi og eftirsóknarverð fyrir þátttakendur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á daglegri starfsemi og þróun félagsstarfs í samræmi við stefnu sveitarfélagsins í málefnum eldri borgara
- Skipuleggur tómstundir og heilsueflingu með áherslu á notendamiðaða þjónustu
- Heldur utan um viðburði og vettvangsferðir á vegum starfseminnar
- Ber ábyrgð á áætlanagerð, framkvæmd og eftirfylgni fjárhags- og starfsáætlana í samstarfi við yfirmann
- Annast innkaup og samþykkt reikninga
- Veitir starfsmönnum leiðsögn og stuðlar að jákvæðu og skapandi starfsumhverfi
- Hefur umsjón með húsnæði og búnaði
- Sinnir öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Félagsliðanám, stúdentspróf eða reynsla úr sambærilegu starfi
- Háskólanám á sviði félags- og tómstundafræða kostur
- Þekking og reynsla af starfi eldri borgurum er kostur
- Nákvæmni, samviskusemi og skipulagshæfileikar
- Samskipta- og samstarfshæfni
- Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2026.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun og reynslu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðs- og kjaradeild í tölvupósti, [email protected]
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Suðurnesjabær er eitt fjögurra sveitarfélaga á Suðurnesjum og eru íbúar rúmlega 4.000 talsins. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag og samanstendur af íbúakjörnunum Garði og Sandgerði. Sveitarfélagið er ört stækkandi en mikil uppbygging er framundan hjá sveitarfélaginu, fjölgun íbúa og spennandi tækifæri til framtíðar á svæðinu. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins.
Íslenska










