Forstöðumaður eignastýringar á sviði vatnsafls
Nú fer í hönd eitt mesta framkvæmdatímabil í sögu Landsvirkjunar, enda þarf að afla orku fyrir orkuskipti og almenna þörf samfélagsins á komandi árum. Við leitum að forstöðumanni með brennandi áhuga á orkumálum til að vera í broddi fylkingar í þeirri vegferð fyrir deild eignastýringar.
Deildin hefur umsjón með einu stærsta eignasafni á Íslandi og tryggir að orkumannvirki skili hlutverki sínu með réttu viðhaldi, endurbótum og endurnýjun mannvirkja og búnaðar. Í deildinni eru gerðar greiningar á fjárfestingarþörf og endurbótaáætlanir fyrir orkuvirki í rekstri.
Forstöðumaður eignastýringar leiðir öflugan hóp verkefnastjóra og sérfræðinga og vinnur þétt með öðrum forstöðumönnum með sjálfbærni, hagkvæmni og öryggi starfsfólks í fyrirrúmi. Við óskum eftir leiðtoga sem vill starfa á framsæknum vinnustað og styðja við metnaðarfullt starfsumhverfi.
- Daglegur rekstur
- Samningagerð
- Eftirlit með kostnaði og framvindu verkefna
- Hlúa að mannauði og starfsanda
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Leiðtogafærni, reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Umbótahugsun, jákvæðni og framsýni
- Áhugi á þróun og tækni
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynnningarbréf sem rökstyður hæfni umsækjanda í starfið.
Hjá Landsvirkjun leggjum við áherslu á öfluga liðsheild og góðan starfsanda. Það er grunnur að fyrirtækjamenningu okkar sem einkennist af tækifærum til starfsþróunar,vellíðan, fjölbreytileika og jafnrétti. Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið.