

Forstöðumaður á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman forstöðumann í sértækt búsetuúrræði fatlaðs fólks sem þjónustar fólk sem búsett er í kjarna og utan kjarnans. Um er að ræða 100% starf. Óskað er eftir drífandi einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfileika og áhuga á málefnum fatlaðs fólks. Áhersla er lögð á réttindi fatlaðs fólks, einstaklingsmiðaða aðstoð og sjálfstætt líf. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Faglegt starf og þjónusta við íbúa
- Daglegur rekstur starfsstöðvar, stjórnun og starfsmannamál
- Fjármál, innkaup og eftirliti með þeim
- Gerð áætlana fyrir starfsstöðina s.s. rekstrar- og fjárhagsáætlunar
- Meðferð gagna og upplýsinga
- Að þjónusta og starfsemi sé í samræmi við lög, reglugerðir, samning sameinuðu þjóðanna, stefnur og samþykkta verkferla
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Masterspróf, eða viðamikil reynsla af stjórnun
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki, a.m.k. 5 ára starfsreynsla æskileg
- Leiðtogafærni og geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Þekking á lögum sem snúa að málaflokknum
- Góð tölvukunnátta
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Mjög góð samskiptahæfni, samstarfshæfni og þjónustulund
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar af Hrönn Hilmarsdóttur, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.





































