Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands

Forseti Heilbrigðisvísindasviðs

Háskóli Íslands leitar að öflugum leiðtoga fyrir Heilbrigðisvísindasvið sem er eitt af fimm fræðasviðum háskólans. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs starfar í umboði rektors. Hann er æðsti yfirmaður og akademískur leiðtogi fræðasviðsins og stjórnar daglegri starfsemi þess. Með forseta fræðasviðs starfar öflugt teymi stjórnenda og sérfræðinga.

Ráðið verður í starfið til fimm ára frá 1. júlí 2022. Á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglur sem háskólaráð hefur sett getur rektor ákveðið að framlengja ráðningu forseta fræðasviðs til fimm ára í senn. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn sérstakrar nefndar um ráðninguna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun, útfærsla og framkvæmd stefnu Háskóla Íslands, HÍ26, á vettvangi fræðasviðs
  • Fjármál og rekstur fræðasviðs og stofnana sem undir það heyra
  • Gæði kennslu, rannsókna og þjónustu
  • Starfsmannamál
  • Stuðla að og styðja við öfluga liðsheild og faglegt samstarf
  • Tengsl við innlenda og erlenda samstarfsaðila
  • Stjórnsýsla og stoðþjónusta fræðasviðsins

Hæfniskröfur

  • Dósentshæfi skv. formlegu mati
  • Þekking og reynsla á alþjóðlegu háskólaumhverfi
  • Leiðtogahæfileikar
  • Metnaðarfull og skýr framtíðarsýn
  • Rík samskiptahæfni
  • Farsæl reynsla af stjórnun og stefnumótun

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda og hvernig hann hyggst vinna samkvæmt stefnu HÍ 2021-2026.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Við ráðningu í störf við HÍ er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans: hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu HÍ: hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.02.2022

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Ísaksdóttir - [email protected] - 525 4355

Smelltu hér til að sækja um starfið

Auglýsing birt7. janúar 2022
Umsóknarfrestur10. febrúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar