Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf

Forritari Microsoft SQL gagnagrunns

Eignaumsjón leitar að öflugum og drífandi forritara til að annast forritun og þróun á Microsoft SQL gagnagrunni fyrirtækisins. Starfið heyrir undir forstöðumann tæknisviðs Eignaumsjónar hf.

Tæknisviðið sér um rekstur tölvukerfa og hugbúnaðargerð og leiðir stafræna þróun fyrirtækisins með það að markmiði að gera bæði starfsfólki og viðskiptavinum kleift að vinna rafrænt með öll gögn sem tengjast þjónustu og rekstri. Efling tæknisviðsins er rökrétt skref á þeirri braut sem Eignaumsjón hefur verið að feta í rekstri upplýsingakerfa sinna til að efla enn frekar tæknigetu í bæði öryggismálum og rafrænum tæknilausnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Viðhald, greining og forritun á Microsoft SQL gagnagrunni Eignaumsjónar

·         Stuðla að skipulagðri varðveislu gagna

·         Stuðningur við úrvinnslu og framsetningu gagna

·         Bæta aðgengi að gögnum

·         Hraða vinnslu og auka öryggi gagna

·         Önnur störf á tæknisviði við úrlausn fjölbreyttra verkefna

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Menntun eða starfsreynsla á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða tengdum greinum sem nýtist vel til úrlausnar ofangreindra verkefna

·         Reynsla af hönnun og forritun Microsoft SQL gagnagrunna

·         Greiningarhæfni, öguð og nákvæm vinnubrögð

·         Áhersla er lögð á drifkraft, frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð

·         Viðkomandi þarf að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt og í hóp

Auglýsing birt30. nóvember 2024
Umsóknarfrestur15. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun gagnagrunnaPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar