

Forfallakennari - Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á unglingastigi (áhersla á bóklegar greinar líkt og íslensku) og/eða yngsta stigi (umsjónarkennsla).
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
- Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
Mennunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
Starfshlutfall er frá 30- 100% eftir samkomulagi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.










































