
Forfallakennari
Fellaskóli auglýsir laust til umsóknar starf forfallakennara. Starfshlutfall 50-100% eftir samkomulagi. Starfið er laust nú þegar.
Fellaskóli er heildstæður grunnskóli í Reykjavík þar sem meira en helmingur nemenda hefur annað móðurmál en íslensku. Nemendur skólans eru um 360 og starfsmenn um 80.
Skólasamfélagið í Fellaskóla hefur sett sér framtíðarsýn sem felur í sér breytingar á starfsháttum skólans. Yfirskriftin er Draumaskólinn Fellaskóli undir merkjum menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast. Megináhersla er á málþroska og læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu kennara, ásamt tónlist og skapandi skólastarf.
Skólabragur er fjölmenningarlegur þar sem víðsýni, jöfnuður, metnaður, valdefling, virðing og skapandi skólastarf eru leiðarljós. Við leggjum mikla áherslu á samstarf við leikskóla og tónlistarskóla í hverfi.
Fagmennska starfsfólks og ástríða fyrir öflugu og litríku skóla- og frístundastarfi skiptir sköpum. Í Draumaskólanum Fellaskóla er skóla- og frístundastarf samþætt fyrir börn í 1. og 2. bekk.
Við leitum að dugmiklum fagmanni eða einstaklingi með áhuga á kennslu.











