
Norlandair
Norlandair var stofnað 1. júní 2008 og tók þá við rekstri Twin Otter flugvéla sem áður voru í eigu Flugfélags Íslands. Í dag rekur Norlandair þrjá Twin Otter og þrjár Beechcraft King Air flugvélar. Norlandair flýgur áætlunarflug frá Akureyri til Vopnafjarðar, Þórshafnar, Grímseyjar og Nerlerit Inaat. Frá Reykjavík til Bíldudals, Gjögurs og Nerlerit Inaat. Norlandair sinnir einnig sjúkraflugi sem og leiguflugsverkefnum á Grænlandi og hér heima.
Flugvirki
Norlandair leitar eftir öflugum og metnaðarfullum aðila í starf flugvirkja hjá Part-145 viðhaldsverkstæði félagsins á Akureyri. Ráðið verður í fleiri en eina stöðu.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér viðhald, bilanagreiningu og viðgerðir á loftförum í samræmi við gildandi reglur, viðhaldsgögn og verklag verkstæðisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur faglegan metnað, vinnur vel bæði sjálfstætt og með öðrum og leggur ríka áherslu á öryggi og vönduð vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Reglubundið og óreglubundið viðhald loftfara
- Bilanagreining og viðgerðir
- Framkvæmd skoðana og viðhalds samkvæmt samþykktum viðhaldsgögnum
- Skráning og frágangur viðhaldsgagna
- Þátttaka í úrlausn tæknilegra mála
- Samstarf við aðra flugvirkja, tæknistjóra og aðra starfsmenn verkstæðisins
- Stuðla að öruggum, faglegum og skilvirkum vinnubrögðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt EASA Part-66 flugvirkjaskírteini
- Reynsla af viðhaldi loftfara og góðan skilning á þeim kröfum og verklagi sem gilda um viðhald í Part-145 umhverfi
- Geta til að vinna sjálfstætt eftir viðhaldsgögnum, verklagsreglum og tæknilegum leiðbeiningum
- Góð hæfni til bilanagreiningar og úrlausnar tæknilegra verkefna
- Fagleg vinnubrögð, öryggisvitund og gæðamiðað hugarfar
- Rík færni til samskipta og samstarfs
- Góð íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli og geta til að vinna með tæknileg gögn á ensku
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (1)
