
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir er dótturfyrirtæki Isavia ohf. Hlutverk félagsins er að reka alla áætlunarflugvelli á Íslandi utan Keflavíkurflugvallar auk fjölda lendingarstaða. Starfsemi fyrirtækisins er mjög fjölbreytt. Við sinnum almennri flugvallarþjónustu, flugumferðarþjónustu, flugvernd, umsjón með verklegum framkvæmdum auk öryggis- og gæðamála.
Hjá fyrirtækinu vinnur samhentur hópur sem hefur það að markmiði að halda Íslandi á lofti og vera hluti af góðu ferðalagi.

Flugvernd á Akureyrarflugvelli
Við leitum að áhugasömum liðsfélögum til að sinna verkefnum í öryggisleit ásamt eftirliti á Akureyrarflugvelli. Um er að ræða að mestu dagvinnu en einnig nætur- og kvöldvinnu.
Umsækjendur þurfa að geta setið fjögurra daga námskeið í byrjun september og standast bakgrunnskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar.
Störfin eru hlutastörf og unnin í tímavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framkvæma öryggisleit á farþegum og handfarangri
- Leiðbeina farþegum og tryggja góða upplifun í gegnum öryggisleit
- Greina og bregðast við frávikum eða öryggisógn
- Tryggja skilvirkt og öruggt flæði farþega í gegnum öryggisleit
Menntunar- og hæfniskröfur
- Aldurstakmark 20 ára
- Gott vald á íslenskri og enskri tungu
- Rétt litaskynjun
- Jákvætt hugarfar
- Þjónustulund og metnaður í starfi
Fríðindi í starfi
Starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiNákvæmniSnyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




