Icelandair
Icelandair
Icelandair

Flugumsjónarmaður

Icelandair leitar að öflugum aðila í starf flugumsjónarmanns í stjórnstöð Icelandair (OCC).

Um er að ræða tímabundið sumarstarf fyrir sumarið 2026 en vegna þjálfunar er gert ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í febrúar.

Flugumsjónarmenn starfa í stjórnstöð Icelandair, Operations Control Center, (OCC). Starf flugumsjónarmanna felst í því að undirbúa hvert flug sem farið er á vegum félagsins, gera flugáætlanir, safna saman veðurupplýsingum ásamt NOTAM upplýsingum og koma þeim til flugmanna fyrir hverja brottför.

Mikil og náin samvinna er við aðrar deildir innan OCC. Þar má nefna Maintenance Control, Daily Crew Operations og Ground Operations.

Unnið er í vaktavinnu, bæði dag- og næturvaktir á 5-5-4 vöktum.

Núverandi starfsstöð OCC er á Keflavíkurflugvelli en á fyrstu mánuðum ársins 2025 mun OCC flytja í nýjar höfuðstöðvar Icelandair í Hafnarfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð flugáætlana (Flight Planning)
  • Eftirlit með flugvélum félagsins (Flight Following)
  • Önnur tilfallandi verkefni í flugumsjón
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt skírteini flugumsjónarmanns er mikill kostur
  • Góð skipulagshæfni og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Hafa metnað til að ná árangri í starfi
  • Góð tölvufærni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg
  • Jákvætt hugarfar og rík þjónustulund
Auglýsing birt20. nóvember 2025
Umsóknarfrestur4. desember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar