Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Flokkstjórar sumarstarfa hjá Þjónustumiðstöð

Eftirfarandi stöður flokkstjóra í sumarstarfi eru lausar til umsóknar

  • Flokkstjóri við almenna þjónustu
    Flokkstjóri stýrir vinnuhópi í almennri þjónustu. Helstu verkefni vinnuhópanna eru viðhald og umhirða gatna og stíga, hreinsun og fegrun bæjarins, hreinsun niðurfalla, ýmis málningarvinna og þökulagnir. Auk þeirra er ýmis þjónusta við bæjarstofnanir.

  • Flokkstjóri við garðyrkju
    Flokkstjóri stýrir vinnuhópi í garðyrkju. Helstu verkefni vinnuhópanna eru umhirða gróðurs, beðahreinsun ásamt hreinsun og umhirðu stofnanalóða. Auk þeirra er ýmis þjónusta við bæjarstofnanir.

  • Flokkstjóri við skógrækt
    Flokkstjóri stýrir vinnuhópi í skógrækt og uppgræðslu. Helstu verkefni vinnuhópanna eru skógræktar og uppgræðsluverkefni, í landi Kópavogs.

Ábyrgð flokkstjóra
Ætlast er til að flokkstjóri vinni með vinnuflokknum. Hann skal sjá um að tæki og verkfæri í umsjón hans og undirmanna hans séu ávallt í lagi og þrif og annað viðhald framkvæmt reglulega. Sérstaklega skal þess gætt að öryggisatriði séu ávallt í fullkomnu lagi, bæði hvað varðar tækjabúnað og útbúnað vinnuflokksins (persónuhlífar, endurskinsfatnað og fleira).

Flokkstjóri skal halda dagbók og skila vikulega vinnuskýrslum með verk- og starfsmannanúmerum fyrir sig og vinnuflokkinn sem undir hann heyrir.

Hæfniskröfur flokkstjóra
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri. Reynsla af stjórnun eða sambærilegum störfum æskileg.

Starfsemi Þjónustumiðstöðvar Kópavogsbæjar
Þjónustumiðstöð Kópavogs hefur umsjón með flestum verkefnum sem tengd eru framkvæmdum á bæjarlandi. Innan þjónustumiðstöðvar eru verkefni sem tengjast snjómokstri, garðyrkju, gatnaviðhaldi, vatns- og fráveitu, sorphirðumálum og önnur þjónusta við íbúa, fyrirtæki og stofnanir.

Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Eflingar.

Starfshlutfall 100%

Starfstímabil 18. maí - 14. ágúst

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar í síma 441 9000

Auglýsing birt8. febrúar 2020
Umsóknarfrestur29. febrúar 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Askalind 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar