
Umhverfissvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum.
Undir Umhverfissvið Múlaþings heyra hafnir, slökkvilið, umhverfis-og framkvæmdarmál.

Flokkstjórar í vinnuskóla Múlaþings
Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir verkstjórum í Vinnuskóla Múlaþings sumarið 2021 á starfstöðvar vinnuskólans á Djúpavogi, Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.
Starf flokkstjóra felst í að stjórna starfi hóps nemenda vinnuskólans, leiðbeina nemendum og fræða þá um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu, halda skýrslu um mætingar og ástundun nemenda og vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum.
Starfsmaður starfar undir stjórn verkstjóra vinnuskólans.
Flokkstjóri er nemendum fyrirmynd hvað varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitssemi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð færni í samskiptum og hæfni til að stýra hópi af ungu fólki.
Reynsla af, og áhuga á, að vinna með og fræða ungt fólk.
Krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Skipulögð og fagleg vinnubrögð
Hafa bílpróf (ekki skilyrði).
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með og samskipti við nemendur vinnuskóla Múlaþings í viðkomandi bæjarkjarna.
Markviss vinna að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum.
Leiðbeiningar til nemenda um verklag og aðferðir og eftirlit með að vel og rétt sé unnið. Gætir þess að ávallt liggi skýrt fyrir hvaða verkefnum eigi að sinna.
Frumkvæði að lausn verkefna sem flokkstjóri starfar að.
Dagleg umsjón með hreinsun og fegrun bæjarins, m.a. opinna svæða.
Að gæta þess að verkfæri séu til staðar og frágengin að loknu verki.
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við verkstjóra vinnuskóla.
Auglýsing birt19. febrúar 2021
Umsóknarfrestur14. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinnaTóbakslausÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Kjötvinnsla - framtíðarstarf
Kjötkompaní ehf.

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður óskast í zinkhúðun á Akureyri.
Ferro Zink hf

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot maintenance technician
NEWREST ICELAND ehf.

FRAMTÍÐARSTARF Í LAMBHAGA GRÓÐRARSTÖÐ Í REYKJAVÍK
Lambhagi ehf.

Tæknimaður við myndun fráveitulagna
Stíflutækni