
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Flokkstjórar í Vinnuskóla Fjarðabyggðar
Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?
Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2010 og 2011 við ýmis umhverfisstörf, Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl n.k. og aðeins er tekið við rafrænum umsóknum.
Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir á netfangið [email protected]
Auglýsing birt26. febrúar 2025
Umsóknarfrestur1. apríl 2025
Tungumálahæfni

Valkvætt
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Bródering og merking fatnaðar.
Merkt

Sumarstarf / Framtíðarstarf
M.Brothers ehf.

Sumarstörf hjá Fjarðabyggðarhöfnum
Fjarðabyggðahafnir

Sumarstörf - þjónustustöð Húsavík
Vegagerðin

Vélamaður á Húsavík
Vegagerðin

Iðnverkamaður / industrial worker
Vagnar og þjónusta ehf.

Rafvirki
Blikkás ehf

Gröfumaður
Jarðtækni

Fjölbreytt sumarstörf á Djúpavogi fyrir 18 ára og eldri
Fjölskyldusvið

Verkamaður óskast / Laborer wanted
Miðbæjareignir

Sumarstarf við lager og áfyllistörf
Linde Gas ehf

Starfsmaður í helluverksmiðju
BM Vallá