

Flataskóli leitar að umsjónarkennurum fyrir skólaárið 2026-2027
Flataskóla vantar metnaðarfulla umsjónarkennara á yngsta- og miðstig.
Viltu starfa í skapandi og faglegu skólastarfi þar sem velferð nemenda og gott samstarf eru í forgrunni?
Við leitum að kennurum í fullt starf frá 1. ágúst 2026, um er að ræða fast starf. Öllum áhugasömum kennurum er velkomið að sækja um, óháð reynslu á ákveðnu stigi – við leggjum áherslu á hæfni og metnað.
Flataskóli er grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–7. bekk og um 50 starfsmenn. Í skólanum ríkir faglegur metnaður og lögð er áhersla á uppbyggileg samskipti og vellíðan nemenda. Skólinn er einnig réttindaskóli hjá UNICEF.
Í Flataskóla er lögð áhersla á jákvætt starfsumhverfi, öflugt samstarf starfsfólks og leiðsagnarnám sem lykilþátt í námsumhverfi nemenda.
Áherslur í starfi skólans
- Fámenni í nemendahópum
- Góður stuðningur við kennara og nemendur
- Skapandi og faglegt skólastarf
- Leiðsagnarnám sem hluti af daglegu skólastarfi
Kennarar hafa jafnframt tækifæri til að taka aukafrídaga með því að vinna af sér tvo daga á önn.
Sýn skólans er að efla seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks.
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda
- Kenna og hafa umsjón með nemendum
- Stuðla að velferð nemenda og jákvæðum samskiptum við foreldra og annað fagfólk
- Taka þátt í teymisvinnu og samstarfi innan skólans
- Taka þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af kennslu í grunnskóla eða starfi með börnum
- Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Áhugi og þekking á leiðsagnarnámi
- Áhugi á skólaþróun
- Góð tölvukunnátta
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Íslenska










