SOS Barnaþorpin
SOS Barnaþorpin
SOS Barnaþorpin

Fjáröflunarstjóri

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi vilja sjá fleiri for­eldra­laus­um börn­um fyrir fjöl­skyldu og góðri æsku. Við óskum því eftir drífandi einstaklingi sem brennur fyrir mannúðarmálum til að móta og efla fjár­öfl­un SOS hér á landi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulag og utanumhald fjáröflunar samtakanna og aðkoma að markaðsmálum
  • Þró­un styrkt­ar­leiða
  • Samskipti og samstarf við styrktaraðila og aðra velunnara
  • Fjár­öfl­un­ar­við­burð­ir og virk þátttaka í herferðum á vegum samtakanna
  • Erlend samskipti við höfuðstöðvar og systursamtök
  • Önn­ur verk­efni tengd fjár­öfl­un og markaðsmálum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Há­skóla­mennt­un sem nýt­ist í starfi eða þeim mun meiri reynsla af fjár­öfl­un
  • Góð þekk­ing á fjár­öfl­un, fjár­mögn­un og/eða sölu- og mark­aðs­mál­um
  • Góð al­menn tölvu­þekk­ing
  • Sveigjanleiki, heil­indi og sjálf­stæð vinnu­brögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, þjónustulund og lausnamiðað viðhorf
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Um SOS Barnaþorpin

SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg hjálparsamtök sem hafa séð mun­að­ar­laus­um og yf­ir­gefn­um börn­um um all­an heim fyr­ir fjöl­skyldu og heim­ili síð­an 1949. SOS Barna­þorp­in hafa beina um­sjá með um 70.000 börn­um og ung­menn­um í barnaþorpum og annarri umönnun all­an sól­ar­hring­inn. Auk þess sinna sam­tök­in forvarnarstarfi sem gengur út á að aðstoða barnafjölskyldur í sárafátækt til að standa á eigin fótum og nær það starf til yfir hálfrar milljónar barna, ungmenna og foreldra þeirra í yfir 100 löndum. Þá eru óupptalin þróunarverkefni og mannúðaraðstoð, allt í þágu barna.

Hlut­verk sam­tak­anna á Ís­landi er fyrst og fremst að sinna fjár­öfl­un fyr­ir verk­efni syst­ur­sam­taka sinna í yfir 100 lönd­um og sinna upp­lýs­inga­gjöf til styrktarað­ila. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi eru vinnu­stað­ur þar sem rík­ir heil­brigð menn­ing, gagn­kvæm virð­ing og góð­ur andi. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu þar sem viðkomandi fær tækifæri til að þróa og móta starfið. Um 37 stunda vinnuviku er að ræða auk sveigjanleika í starfi þar sem tækifæri eru til símenntunar.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511 1225 og Ragnar Schram ([email protected]), framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpa, í síma 5642910.

Auglýsing birt3. nóvember 2023
Umsóknarfrestur20. nóvember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hamraborg 1-3 1R, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar