
Stykkishólmsbær
Stykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins. Þar kemur margt til, ef til vill vegur þar þungt metnaður bæjarbúa fyrir að varðveita umhverfi sitt og sögu svo komandi kynslóðir fái notið þeirra á sama hátt og við gerum nú. Sú hugsun endurspeglast hvað best í miðbæ Stykkishólms sem óhætt er að vísa til sem safns gamalla húsa. Stykkishólmsbær fékk Skipulagsverðlaunin 2008, sem veitt eru af Skipulagsfræðifélagi Íslands, fyrir deiliskipulag miðbæjar, stefnu og framfylgd hennar og eru bæjarbúar ákaflega stoltir og þakklátir fyrir þá viðurkenningu.
Fjármála- og skrifstofustjóri
Sveitarfélagið Stykkishólmur leitar að kraftmiklum fjármála- og skrifstofustjóra með mikla samskiptafærni. Viðkomandi þarf að vera skipulagður, vandaður í vinnubrögðum ásamt því að hafa ríkan vilja til að taka þátt í að efla innra og ytra starf og þjónustu sveitarfélagsins.
Fjármála- og skrifstofustjóri stýrir fjármálum sveitarfélagsins og er yfirmaður á
bæjarskrifstofu. Starfið er mjög fjölbreytt og tekur skrifstofu- og fjármálastjóri virkan
þátt í stjórnun og stefnumótun sveitarfélagsins ásamt því að leiða margþætt verkefni
er varða stjórnsýslu og fjármál á tímum framfara og þróunar.
Skrifstofu- og fjármálastjóri er staðgengill bæjarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg forysta og verkstjórn daglegra verkefna bæjarskrifstofu
- Yfirmaður fjármála og ábyrgð á umsýslu fjármála og bókhalds
- Umsjón með fjárhagsáætlanagerð, frávikagreiningum, fjárhagslegum úttektum og
kostnaðareftirliti sem og yfirferð samþykktra reglna sveitarfélagsins og gjaldskráa - Ábyrgð á vinnu við ársreikninga og gerð rekstrar-, launa-, starfs- og fjárhagsáætlana,
ásamt eftirliti með framgangi þeirra - Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði fjármála og fjárreiða
- Aðstoð við undirbúning funda og viðvera á bæjarráðs- og bæjarstjórnarfundum,
umsýsla og ritun fundargerða og eftirfylgni með ýmsum málum - Yfirumsjón með mannauðs- og kjaramálum í samvinnu með mannauðs og
launafulltrúa, þ.m.t. upplýsingagjöf til starfsmanna og stjórnenda vegna launamála,
samninga og verklagsreglna, og samskipti vegna kjarasamninga og túlkun á þeim - Ábyrgð á innkaupum, aðkoma að samningagerð og önnur fjármálatengd verkefni
- Yfirumsjón með skjalavörslu sveitarfélagsins og stofnana þess
- Samskipti við forstöðumenn og íbúa vegna erinda er snúa að fjármálum og annarri
þjónustu bæjarfélagins, ásamt samskiptum við ýmsa opinbera aðila - Ábyrgð á stjórnsýslu, þróunarstarfi og nýsköpun í stjórnsýslu
- Staðgengill bæjarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskipta- eða hagfræði
- Þekking og farsæl reynsla af fjármálastjórn og rekstri, þ.m.t. áætlanagerð
- Mjög góð þekking á reikningshaldi og uppgjörum
- Farsæl reynsla af stjórnun
- Reynsla af stjórnun mannauðs kostur
- Þekking á málefnum sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu kostur
- Góð tölvukunnátta sem nýtist í starfi
- Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, skipulagshæfileikar og drifkraftur í starfi
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð félagsleg færni
- Samviskusemi, nákvæmni, vammleysi og sjálfstæði í starfi
- Góð hæfni í íslensku og ensku í ræðu og rit
Auglýsing birt16. ágúst 2024
Umsóknarfrestur2. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 3, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (5)

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands
Rafíþróttasamband Íslands

Fjármálastjóri Knattspyrnufélagsins Vals/Framkvæmdastjóri Hlíðarenda SES
Knattspyrnufélagið Valur

Skrifstofustjóri Vopnafjarðarhrepps
Vopnafjarðarhreppur

Bókari í hlutastarf
Tindasel - The Farm