Fjármál og bókhald - Fimleikasambands Íslands
Fimleikasamband Íslands leitar að talnaglöggum, nákvæmum og drífandi einstakling til starfa. Um er að ræða 100% starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að vinna á öflugum og skemmtilegum vinnustað í ögrandi og síbreytilegu umhverfi að frekari uppbyggingu fimleika á Íslandi.
Starfshlutfall er 100% og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfsstöð er á skrifstofu FSÍ Engjavegi 6.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst.
• Færsla bókhalds og afstemmingar.
• Gerð og yfirferð ársreikninga.
• Framkvæmd rekstaruppgjöra.
• Gerð fjárhagsáætlana.
• Umsjón með skráningum í tölvukerfi sambandsins.
• Flug- og hótelbókanir.
• Þjónusta við fimleikafélög í landinu.
• Önnur tilfallandi verkefni
• Menntun á fjármála eða viðskiptasviði er kostur
• Reynsla af bókhaldsstörfum
• Þekking á Business Central
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
• Frumkvæði, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
• Góð færni í framsetningu upplýsinga.
• Geta til að vinna sjálfstætt og í hóp.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Góð þekking á office pakkanum.
• Þekking á fimleikum er kostur.