
Fjárfestingastjóri
Brunnur Ventures leitar að öflugum aðila í fjölbreytt og krefjandi starf fjárfestingastjóra (Investment Principal / Investment Director).
Starfið felst í að finna og greina sprota- og vaxtarfyrirtæki, og semja um fjárfestingar í þeim. Starfið kallar á nána samvinnu með frumkvöðlum um margvísleg verkefni, með stjórnarsetu í félögum, þróun viðskiptatengsla, undirbúning fjármögnunar, þróun viðskiptalíkans, aðstoð með lykilráðningar o.fl.
Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir nýsköpun, hefur skarpa viðskiptahugsun og kann að vinna náið með metnaðarfullum frumkvöðlum og fjárfestum. Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif – frá fyrstu greiningu fjárfestingartækifæra til virkrar þátttöku í uppbyggingu fyrirtækja sem stefna á alþjóðlega markaði.
- Leit og mat á fjárfestingartækifærum.
- Greining á rekstri, markaði, samkeppnisstöðu og vaxtarmöguleikum.
- Samningaviðræður um kaup á hlutafé og gerð hluthafasamkomulags.
- Eftirfylgni með fjárfestingum í eignasafni sjóðanna, m.a. fjármögnun og undirbúning útgöngu (sala eða skráning á markað).
- Virk þátttaka í stjórnunar- og stefnumótunarvinnu eftir atvikum.
- Samskipti við fjárfesta í sjóðum Brunns.
- Upplýsingagjöf og skýrslugerð.
- Annað sem til fellur.
- Meistaragráða í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða tengdum greinum.
- Reynsla og þekking á sviði vísifjárfestinga (e. Venture Capital).
- Reynsla af fjárfestingum, fyrirtækjagreiningum, fjármálum, ráðgjöf, frumkvöðlastarfi eða sambærilegu umhverfi.
- Reynsla af greiningu fjárfestingakosta og gerð kynnninga.
- Sterk greiningarhæfni og geta til að meta rekstrar- og vaxtarmódel.
- Góð þekking á fjárhagslíkönum og mati á fyrirtækjum.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust tengsl við frumkvöðla og samstarfsaðila.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og drifkraftur.
- Mikill áhugi á nýsköpun, sprotaumhverfi og alþjóðlegum vaxtartækifærum.
- Lifir og andar AI – notar gervigreind á framúrskarandi hátt í greiningarvinnu, fylgist daglega með nýjungum.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
Íslenska
Enska










