
Benchmark Genetics Iceland hf.
Benchmark Genetics starfar í 7 löndum; Vietnam, Bretlandi, Noregi, Íslandi, Bandaríkjunum, Chile og Kólumbíu.
Fyrirtækið starfar á sviði kynbóta í laxi og rækju og leggur áherslu á að bæta erfðaeiginleika, tryggja afhendingaröryggi og stuðla að sjálfbærum lausnum. Fyrirtækið býður einnig upp á arfgerðargreiningar og sérsniðna erfðagreiningaþjónustu fyrir fjölbreyttar tegundir í fiskeldi.

Fiskeldi -Vogar
Við í Benchmark Genetics Iceland hf. þurfum að bæta við í fiskeldi fyrirtækisins í Vogum. Í boði er starf hjá alþjóðlegu, framsæknu fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki.
Vinnutíminn er 08:00 - 16:00 Mán - Fös
Um framtíðarstarf er að ræða
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn störf í starfsstöð okkar í Vogavík í samræmi við gæða- og öryggisstefnu fyrirtækisins
- Fóðurgjöf, umhirða fiska, þrif á landkerum, viðhaldsvinna o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Samviskusemi, jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Reynsla og/eða nám úr fiskeldi er kostur
Fríðindi í starfi
- Hvetjandi starfsþróunarstefna
- Afmælisfrí á launum
- Niðurgreiddur matur
- Samgöngusamningur
- Heilsustyrkur
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Valkvætt
Staðsetning
Stapavegur 1, 190 Vogar
Bæjarhraun 14, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar