Ferðaráðgjafi hjá Hidden Iceland
Hidden Iceland leitar að jákvæðum og úrlausnagóðum aðila til að ganga til liðs við okkur sem ferðaráðgjafi. Viðkomandi þarf að vera með sterka hæfni í samskiptum við viðskiptavini, sjá um sölu- og tilboðsgerð, bókanir og eftirfylgni ferða. Sérstök áhersla er lögð á þjónustu við premium og lúxus viðskiptavini, bæði fyrir sérferðir (private tours) og sjálfsakstursferðir (self-drive tours).
Starfið sem laust er til umsóknar er fullt starf, tímabundið til eins árs með möguleika á framlengingu, til að leysa af starfsfólk í fæðingarorlofi. Tvær stöður í boði. Skrifstofa Hidden Iceland er á Fiskislóð 18 í Reykjavík.
Hidden Iceland var stofnað árið 2017 og fyrirtækið sérhæfir sig í sérsniðnum pakkaferðum fyrir einstaklinga og litla hópa á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa alls yfir 40 starfsmenn, en hópurinn samanstendur af ferðaráðgjöfum og leiðsögumönnum sem koma víðsvegar að.
- Sala, bókanir og tilboðsgerð
- Samskipti við viðskiptavini og þjónustuaðila
- Undirbúningur og eftirfylgni ferða
- Símsvörun og tölvupóstsamskipti
- Önnur tilfallandi verkefni innan söludeildarinnar
- Reynsla af störfum í ferðaráðgjöf, sölumennsku og þekking á Íslandi sem ferðamannastaður er skilyrði
- Reynsla af lúxusferðum er kostur
- Lágmarks grunnhæfni í íslensku er kostur
- Mjög gott vald á ensku í töluðu og rituðu máli
- Góð almenn tölvukunnátta og reynsla í helstu bókunarkerfum á borð við Bókun og Travia er kostur
- Sterk skipulagshæfni, skipulögð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Sveigjanlegur vinnutími
- Íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og starfsmenntunarstyrkur