

Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir félagsráðgjafa til starfa í fullt starf í ráðgjafar- og húsnæðisteymi.
Fjölskyldu-og barnamálasvið ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar þar sem leitast er við að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúanna. Áhersla er lögð á heildstæða félagslega þjónustu, þverfaglega samvinnu og snemmtæka íhlutun. Auk þess er lögð áhersla á samþætta þjónustu í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Markmið starfsins er að veita félagslega ráðgjöf og veita einstaklingum og fjölskyldum þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita félagslega ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna
- Móttaka og greining/mat umsókna um þjónustu (almenn ráðgjöf og fjárhagsaðstoð) og úrvinnsla þeirra
- Snemmtæk íhlutun í málefnum barna og fjölskyldna
- Vinnur að faglegri stefnumótun og nýsköpun í málaflokknum hjá sveitarfélaginu
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meistaragráðu í félagsráðgjöf
- Reynsla af starfi með börnum og fjölskyldum æskileg
- Reynsla af meðferðarvinnu og vinnu í þverfaglegu teymi æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Geta til að vinna undir álagi
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
- Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
Nánari upplýsingar veitir Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri ráðgjafar-og húsnæðisteymis, [email protected]
Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 21. mars 2025.
Ferilskrá, kynningarbréf og starfsréttindi fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.



































