Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.
Félagsráðgjafi í deild virkni og ráðgjafar á Norðurmiðstöð
Norðurmiðstöð leitar að öflugum félagsráðgjafa til starfa í deild virkni og ráðgjafar. Starfið krefst þekkingar á almennri félags- og velferðarþjónustu og hæfni í mannlegum samskiptum. Starfið er fjölbreytt og snýr að þjónustu við borgarbúa sem unnin er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til 30. september 2025 og er kostur ef viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Norðurmiðstöð býður upp á fjölskylduvænan vinnustað með sveigjanlegum vinnutíma þar sem innleidd hefur verið 36 stunda vinnuvika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita félagslega ráðgjöf til einstaklinga m.a. vegna félagslegra aðstæðna, óvinnufærni, atvinnuleysis, virkni, vímuefnamála og fjölmenningar.
- Greining á þjónustuþörf og ráðgjöf m.a. varðandi fjárhagsaðstoð, húsnæðismál og þeirrar þjónustu og stuðningsúrræða sem eru í boði bæði hjá Reykjavíkurborg og hjá öðrum.
- Sinna verkefnum sem taka til almennrar félags- og velferðarþjónustu auk þróunar á þjónustu.
- Taka þátt í þverfaglegu samstarfi innan og utan Norðurmiðstöðvar.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
- Þekking og reynsla í vinnslu og meðferð mála með einstaklinga æskileg.
- Þekking og reynsla af sviði velferðarþjónustu.
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
- Áhugi á teymisvinnu.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta (C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
- Enskukunnátta, önnur tungumálakunnátta æskileg.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Sundkort
- Menningarkort
- Heilsuræktarstyrkur
- Möguleiki á samgöngustyrk
Auglýsing birt1. nóvember 2024
Umsóknarfrestur17. nóvember 2024
Tungumálahæfni
Íslenska
MeðalhæfniNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Opinber stjórnsýsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sjúkraliði í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Stuðningsfulltrúi í íbúðakjarna í Grafarholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Ráðgjafi í alþjóðamálum á Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Taktu þátt í að móta nýjan íbúðakjarna í Hlíðunum!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Teymisstjóri óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)
Deildarstjóri hjá Vinakoti
Vinakot
Ráðgjafi
Vinakot
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Sólvangi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sálfræðingur í verktöku
Auðnast
Ráðgjafi í alþjóðamálum á Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu
SSH
Fjöliðjan auglýsir eftir fagaðila til tímabundinna starfa
Fjöliðjan
Hópstjóri á Bjargey, meðferðarheimili í Eyjafirði
Bjargey
Ráðgjafar á Bjargey, meðferðarheimili í Eyjafirði
Bjargey
Ljósið leitar að sálfræðing
Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
Sálfræðingur – Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs
Hafnarfjarðarbær