Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið

Félagsráðgjafi hjá Múlaþingi

Um er að ræða 100% stöðu félagsráðgjafa barna- og fjölskylduvernd.

Við höfum mikið að gera í snemmtækum stuðningi og vandaðri þjónustu við barnafjölskyldur og leggjum áherslu á að búa starfsmönnum okkar góðar og fjölskylduvænar starfsaðstæður. Til þess að álag sé ekki of mikið á hvern starfsmann viljum við fjölga í okkar hópi.

Félagsráðgjafi starfar í teymi Austurlandslíkansins er kemur að málefnum barna og fjölskyldna í samstarfi við skóla, leikskóla og heilsugæslu. Teymið starfar að hluta til í leik- og grunnskólum þeirra sveitarfélaga sem standa að Félagsþjónustu Múlaþings. Auk þess að sitja í teyminu, starfar félagsráðgjafi innan fjölskyldusviðs og sinnir m.a. barnaverndarmálum ásamt öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.

Félagráðgjafi starfar meðal annars eftir barnaverndarlögum nr. 80/2002, og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og öðrum lögum er lúta að sviðinu.

Menntunar- og hæfniskröfur
Starfsréttindi í félagsráðgjöf
Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd
Getu og vilja til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum
Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu
Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á Navision og OneSystems er kostur
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Kostur að hafa PMTO meðferðarmenntun
Bílpróf
Auglýsing birt27. júlí 2021
Umsóknarfrestur31. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FélagsráðgjafiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.NavisionPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar