
Borgarbyggð
Sveitarfélagið Borgarbyggð. Borgarbyggð er á Vesturlandi og er í alfaraleið
Félagsráðgjafi
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag með ríka sögu, í nálægð við höfuðborgina þar sem íbúar og gestir upplifa öflugt skólastarf, íþrótta-, menningar- og listalíf, góða þjónustu og vinalegt viðmót ásamt fjölbreyttri afþreyingu í einstakri náttúrufegurð.
Um er að ræða 100% starfshlutfall. Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Erum við að leita að þér?
Menntunar- og hæfniskröfur
• Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
• Þekking og reynsla á sviði barnaverndar og meðferð fjölskyldumála.
• Þekking og reynsla af vinnu með fólki með skerðingar æskileg.
• Þekking á forvarnamálum æskileg
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
•Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
•
Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
•
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
•
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Helstu verkefni og ábyrgð
•Annast meðferð mála einstaklinga og fjölskyldna innan félagsþjónustu, þ.m.t. félagslega ráðgjöf og fjárhagsaðstoð.
•Annast greiningu, könnun og vinnslu barnaverndarmála.
•Aðkoma að þjónustu og ráðgjöf við fólk með fötlun, bæði börn og fullorðna.
•Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu s.s. með skólum, leikskólum og öðrum þjónustu-stofnunum vegna málefna barna og fjölskyldna þeirra.
•Forvarnarmál.
Auglýsing birt6. september 2021
Umsóknarfrestur20. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali

Ráðgjafi í áfengis- og vímuefnameðferð óskast í Hlaðgerðarkot
Samhjálp

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis
Tannlæknastofa Kópavogs

Sérhæfður starfsmaður við krufningar á meinafræðideild
Landspítali

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali