
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Félagsleg liðveiðsla
Fjölskyldusvið Borgarbyggðar óskar eftir starfsfólki í félagslega liðveislu í Borgarbyggð.
Markmið liðveislu er fyrst og fremst að veita aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og njóta tómstunda utan heimilis. Einnig að efla einstaklinga til sjálfshjálpar og veita persónulegan stuðning.
Hver einstaklingur sem á rétt á liðveislu fær u.þ.b. 16 klst. á mánuði sem eru útfærðar í samráði við liðveitanda. Hver liðveitandi getur sinnt 1 - 3 einstaklingum í einu og er þetta því kjörið starf fyrir námsfólk eldra en 18 ára en um tímavinnu er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Íslenskukunnátta
Auglýsing birt16. janúar 2023
Umsóknarfrestur13. febrúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)

