Matvælastofnun
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar
Fagsviðsstjóri - samræming eftirlits og HACCP
Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf fagsviðsstjóra samræmingar og HACCP, í matvæladeild samhæfingarsviðs stofnunarinnar. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi eða annarri starfstöð stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju, samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með eftirlitshandbókum og verklagi varðandi matvælaeftirlit
- Umsjón með eftirliti með bátum, löndunaraðstöðu og söluskrifstofum í sjávarútvegi
- Umsjón með eftirliti vegna sérmarkaða
- Hefur umsjón með þjálfun eftirlitsfólks í matvælavinnslum
- Kemur að gerð eftirlitsáætlana
- Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis fyrir eftirlitsfólk, matvælafyrirtæki og neytendur varðandi HACCP og innra eftirlit
- Samskipti við hagaðila varðandi málaflokkana
- Fylgjast með löggjöf og þróun á sínu starfssviði, þ.m.t. erlendu samstarfi
- Fræðsla og upplýsingagjöf innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Matvælafræðingur, sjávarútvegsfræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulags- og samskiptahæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt5. október 2024
Umsóknarfrestur14. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (11)
Fagsviðsstjóri - aðskotaefni og aukefni í matvælum
Matvælastofnun
Fagsviðsstjóri - neysluvatn og örverur
Matvælastofnun
Ábyrgðarhafi (QP)
Distica
Sérfræðingur í deild siglinga- og hafnaeftirlits
Samgöngustofa
Líffræðingur - sameindalíffræðingur á meinafræðideild
Landspítali
ARD Laboratory Technician
Alvotech hf
Verkefnastjóri, gæðatrygging og skráningar
Ísteka
Viltu veita ráðgjöf við innivist?
EFLA hf
Sérfræðingur í þróun á mæliaðferðum
Coripharma ehf.
SÉRFRÆÐINGUR Í GÆÐATEYMI Á SELFOSSI
Mjólkursamsalan
New Technologies Group-Scientist/Senior&Principal Scientist
Alvotech hf