Matvælastofnun
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar
Fagsviðsstjóri - neysluvatn og örverur
Matvælastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf fagsviðsstjóra á sviði neysluvatns og örvera, í matvæladeild samhæfingarsviðs stofnunarinnar. Um fullt starf er að ræða á aðalskrifstofu Matvælastofnunar á Selfossi eða annarri starfstöð stofnunarinnar utan höfuðborgarsvæðisins.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju, samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur umsjón með málaflokkunum um neysluvatn og örverufræðileg viðmið í matvælum
- Kemur að rannsókn matarborinna sýkinga
- Kemur að gerð eftirlitsáætlana
- Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis fyrir eftirlitsfólk, matvælafyrirtæki og neytendur
- Samskipti við rannsóknastofur
- Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir varðandi málaflokkana
- Vinnur að innleiðingu löggjafar í málaflokkunum
- Fylgjast með löggjöf og þróun á sínu starfssviði, þ.m.t. erlendu samstarfi
- Upplýsinga- og gagnaöflun ásamt skýrslugerð
- Fræðsla og upplýsingagjöf innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Matvælafræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulags- og samskiptahæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt5. október 2024
Umsóknarfrestur14. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Fagsviðsstjóri - aðskotaefni og aukefni í matvælum
Matvælastofnun
Fagsviðsstjóri - samræming eftirlits og HACCP
Matvælastofnun
Ábyrgðarhafi (QP)
Distica
Líffræðingur - sameindalíffræðingur á meinafræðideild
Landspítali
ARD Laboratory Technician
Alvotech hf
Verkefnastjóri, gæðatrygging og skráningar
Ísteka
Viltu veita ráðgjöf við innivist?
EFLA hf
Scientist in Pharmaceutical Development
Oculis ehf.
Sérfræðingur í þróun á mæliaðferðum
Coripharma ehf.
SÉRFRÆÐINGUR Í GÆÐATEYMI Á SELFOSSI
Mjólkursamsalan
New Technologies Group-Scientist/Senior&Principal Scientist
Alvotech hf
Umsjónarmaður rannsóknarstofa í jarðefnafræði
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands