Ert þú sérfræðingur í menningu og tölfræði?
Hagstofa Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í verkefni tengd menningu og skapandi greinum. Í þessu fjölbreytta og spennandi starfi felst að vinna og birta hagtölur um menningu og listir, þar með talið hagrænar mælingar og mælingar á menningarneyslu þjóðarinnar. Í starfinu felst jafnframt að móta og þróa verkferla sem miða að því að auka gæði menningartölfræði Hagstofunnar. Viðfangsefnin fela í sér samskipti við innlenda og erlenda aðila og er leitað eftir einstaklingi með mikla samskiptafærni.
-
Vinna og birta hagtölur um menningarneyslu þjóðarinnar
-
Vinna og birta hagtölur um listir og skapandi greinar
-
Móta og þróa verkferla í tengslum við málaflokkinn
-
Samskipti við innlenda og erlenda hagsmunaaðila
-
Háskólamenntun í félagsfræði, stjórnmálafræði eða öðrum greinum sem veita þekkingu og færni í tölfræðilegri úrvinnslu
-
Markverð reynsla og hæfni til að skipuleggja og reka verkefni
-
Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu í R eða Python
-
Reynsla af greiningu gagna og framsetningu tölulegra upplýsinga
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
-
Frumkvæði, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
-
Samskipta- og samstarfshæfni
-
Þekking á listum og menningu er kostur
-
Reynsla af vinnslu í gagnagrunnsumhverfi er kostur