
Krónan
Verslanir Krónunnar eru í dag 26 talsins auk Snjallverslun. 19 á höfuðborgarsvæðinu auk verslana á Akureyri, Akranesi, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum.
Á hverjum degi – allan ársins hring keppumst við, starfsfólk Krónunnar, við að koma réttu vöruúrvali til þín á eins ódýran hátt og mögulegt er. Þrátt fyrir lágt vöruverð gefum við engan afslátt af ferskleikanum.

Ert þú næsti vöruflokkastjóri Krónunnar?
Snyrtivörur – Húð & Hár – Barnavörur – Heimilisvörur - Gæludýr
Við í Krónunni leitum að framsækinni og lausnamiðaðri manneskju til að leiða spennandi vöruflokka sem snerta daglegt líf fólks og hafa áhrif á líðan, umhverfi og upplifun.
Vöruflokkastjórar Krónunnar eru ábyrgir fyrir því að þróa vöruframboð í takt við stefnu Krónunnar og tryggja að við séum alltaf skrefi á undan í því að mæta þörfum okkar fjölbreyttu viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vöruflokkastýring fyrir snyrtivörur, húð- og hárvörur, barnavörur, heimilisvörur og gæludýravörur
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja og aðra samstarfsaðila
- Vöruval, verðlagning og greining á sölu og markaðstækifærum
- Þátttaka í herferðum, kynningum og þróun á upplifun í verslunum og stafrænu umhverfi
- Öflugt samstarf með kröftugu teymi Krónunnar sem brennur fyrir jákvæðri upplifun viðskiptavina og að hafa góð áhrif til framtíðar
Menntunar- og hæfniskröfur
Við viljum fá til liðs við okkur einstakling sem:
- Hefur brennandi áhuga á vörum og þróun og fylgist með nýjungum
- Hefur reynslu af innkaupum, vörustýringu og/eða vörumerkjastjórnun (helst í sambærilegum flokkum)
- Hugsar í lausnum og er óhræddur við að taka frumkvæði
- Er skipulagður og með næmt auga fyrir smáatriðum
- Er teymisþenkjandi og frábær í samskiptum
- Vill hafa áhrif og gerir hlutina með gleði og ábyrgð
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
- Aðgangur að velferðarþjónustu Krónunnar
Auglýsing birt10. júlí 2025
Umsóknarfrestur10. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (1)