Vinnuvernd ehf.
Vinnuvernd ehf.
Vinnuvernd ehf.

Ert þú næsti sálfræðingur Vinnuverndar?

Vegna aukinna umsvifa viljum við bæta við teymið okkar og leitumst eftir að ráða öflugan sálfræðing til að slást í för með okkur.

Um er að ræða dagvinnu í 50 - 100% starfshlutfalli.

Vinnuvernd er framsækið þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki sem leitast eftir því að efla heilbrigði einstaklinga og vellíðan á vinnustöðum. Hjá okkur starfar reynslumikill hópur fagfólks sem hefur sérhæft sig í þjónustu við atvinnulífið og einstaklinga. Teymið okkar samanstendur af hjúkrunarfræðingum, læknum, sálfræðingum, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og móttökustjóra, en öll sameinum við krafta okkar í faglegri þjónustu til viðskiptavina.

Í dag þjónustum við stolt fjölmörg íslensk fyrirtæki, stofnanir og sveitafélög og fer þeim ört fjölgandi.

Við erum á spennandi vegferð og við getum ekki beðið eftir því að bæta góðu fólki við hópinn okkar!

Við hlökkum til að heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Einstaklingsviðtöl

Fræðsla og þjálfun á vinnustöðum fyrir starfsfólk og stjórnendur

Handleiðsla og ráðgjöf við einstaklinga og hópa

Önnur tilfallandi verkefni sálfræðinga

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt starfsleyfi sálfræðings

Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu

Lausnamiðuð og sjálfstæð vinnubrögð

Metnaður, jákvæðni og frumkvæði í starfi

Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli

Fríðindi í starfi

Símastyrkur

Endurmenntunarstyrkur

Heilsustyrkur

Auglýsing stofnuð18. janúar 2024
Umsóknarfrestur31. janúar 2024
Staðsetning
Holtasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar